Aðalfundarboð 2016

Boðað er til aðalfundar Atorku, föstudaginn 20.maí nk.

Fundurinn verður haldinn í nágrenni við Haltern am See í Þýskalandi.  Endanleg stað- og tímasetning verður ákveðin þegar nær dregur.

Dagskrá skv.samþykktum samtakanna:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla reikninga
  3. Kosning formanns
  4. Kosning stjórnarmanna
  5. Kosning endurskoðenda
  6. Ákvörðun um árgjald
  7. Önnur mál

Óskað er eftir tillögum s.s. um stjórnarmenn eða önnur málefni sem afgreiða þarf á fundinum, sem allra fyrst, eða í síðasta lagi þriðjudaginn 17.maí nk. Vinsamlegast sendið viðkomandi erindi á undirritaðan. Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á fundinn, en vilja með einhverjum hætti taka þátt s.s. að koma á framfæri skilaboðum eða fyrirspurnum, eru beðnir um að hafa samband við undirritaðan og við leysum málin. Bendum á ýmsar tiltækar tæknilausnir s.s. síma og  Skype.

Eins og margoft áður þá verður í tengslum við aðalfundinn blandað saman fræðslu og upplifun ýmiskonar. Í þetta skiptið förum við í fyrirtækjaheimsóknir í tveimur löndum, annars vegar í Hollandi og hins vegar í Þýskalandi. Við byrjum á því að heimsækja H.Hardeman í Hollandi, en þar er um að ræða stóran framleiðanda á stálgrindarhúsum fyrir fjölbreytt notkunarsvið. Einnig heimsækjum við Set Pipes GmbH í Þýskalandi, en þar er um að ræða leiðandi fyrirtæki í framleiðslu og sölu á einangruðu lagnaefni. Við munum einnig leggja áherslu á og kynna okkur ítarlega menningu á þeim svæðum sem við förum um, s.s. verslun og þjónustu, framleiðslu margskonar s.s. bruggun víns, öls osfrv.